03ágúst

Fríið á enda...

Þetta sumarfrí mitt er að klárast því við erum í fríi bara í dag og á morgun og svo byrjar sama gamla rútínan aftur... æji ég held að það sé bara ágætt. Það er auðvitað búið að vera notalegt að þurfa ekkert að vinna en það er samt búið að vera strembið að vera svona ein í fríi með tvo skæruliða... þeir geta verið doltið erfiðir stundum þessi grey! En þeir þurftu sko algjörlega á þessu fríi að halda eins og ég svo þetta var bara ágætt... hefði verið enn betra að geta stungið af til útlanda eða eitthvað svoleiðis skemmtilegt, kannski næsta ár

Seinasta helgi var doltið sérkennileg, við fórum á ættarmót sem virkaði svona eiginlega bara eins og hver önnur útileiga en ekkert ættarmót!? Það voru allir á hótelinu nema ég og strákarnir, mamma og Gulli, Sigrún, Biggi og Ívar en við vorum á tjaldsvæðinu... svo við vorum voða mikið bara útaf fyrir okkur og restin á hótelinu eða eitthvað, við vitum það ekkert almennilega? Eina skiptið sem ættin var öll saman var yfir kvöldmat á laugardeginum í tvo tíma... skringilega planað ættarmót að mínu mati! En þetta var samt bara fínt, gaman að gera eitthvað nýtt... og við túristuðum aðeins og svona, svo margt að skoða þarna í kringum skóga.

Vikan er svo búin að vera bara ágæt... busy og svona frekar fljót að líða. Gulli pabbi ætlaði að sækja fyrir mig sófann á mánudaginn en þá var hann týndur? En húsgagnahöllin fann hann svo á þriðjudaginn og kom með hann til mín, mikil gleði! Ég kíkti líka í bíó á mánudaginn og sá nýju batman myndina sem er bara hrein snilld!!

Við strákarnir höfum svo reynt að nýta góða veðrið og fórum til dæmis í grasagarðinn í laugardalnum á miðvikudaginn, gáfum brabra brauð á fimmtudaginn, fengum okkur göngutúr og nesti í elliðaárdalnum á föstudaginn og svo í sund í gær... nóg að gera sko! Ég vann líka í ríkinu á miðvikudaginn og fimmtudaginn, kíkti á Birnu og litla 6 vikna gamla strákinn hennar líka á fimmtudaginn... hann er aaaalgjör monsi!!

Svo í gær seldi ég gamla sófann minn og keypti mér splunkunýja litla sony myndavél í staðinn... ég er bara nokkuð sátt sko! Enda gamla vélin mín frekar mikið ónýt þó svo ég hafi alveg getað tekið myndir á hana. Svo verð ég bara að safna fyrir stórri myndavél... langar svo að eiga eina svona alvöru vél! En já... þannig að nóg að gera, er líka frekar þreitt í dag og vildi óska þess að ég gæti bara haldið áfram að sofa... en heyrist á gæjunum mínum að ég þurfi að fara eitthvað út með þá! Við erum líka að passa hana Mínu yfir helgina fyrir mömmu og Söndru sys... Mína er pínulítill chiuvava hundur, algjör gullmoli!

Elvar á svo afmæli eftir 3 daga svo ég þarf að fara að halda uppá afmæli næstu helgi... stuð, stuð, stuð! Ég veit ekki alveg hvort mig hlakki til að halda afmæli eða hvíði fyrir því... mér finnst ekkert alltof gaman að halda svona uppákomur... er enn að læra þetta! En jæja... það er verið að heimta mömmu sína hérna svo ég ætla að koma mér úr náttfötunum og út að gera eitthvað!

03. ágúst 2008 klukkan 09:13
Karen
2 athugasemdir
25júlí

Vikan endalausa!

Vá... ég hélt að þessi vika myndi aldrei klárast!! Þoli ekki svona marga rigningadaga í röð... en sólin er að koma núna svo þetta er allt að bjargast fyrir helgina sem er bara æðislegt!

Við strákarnir höfum nú ekki gert margt þessa vikuna, bara reynt að slaka á og kíkja smá á róló og svona dúllerí... enda verður maður latur í rigningu. Svo vikan er búin að vera lengi að líða. Ég fór samt að vinna á þriðjudaginn og miðvikudaginn sem breytti öllu hjá mér, gott að komast út og láta aðra hugsa um strákana í smá tíma.

Svo í gær áttum við doltið kreisí dag. Ég ákvað um 11 leitið að fara með strákana í sund, við röltum því af stað útí bíl þegar ég rek augun í sófabækling frá húsgagnahöllinni og ákvað að fletta í gegnum hann og viti menn... ég sá sófann minn! Oooooog... ég hafði efni á honum Hlæjandi Það bara hlaut að koma að því!! Jeij... svo ég brunaði uppí húsgagnahöll og keypti mér eitt stykki sófa, en get samt ekki náð í hann fyrr en á mánudaginn... en það er alltílæ því ÉG Á NÝJANN SÓFA! Loksins segi ég nú bara! En svo þegar ég var búin að borga sófann þá varð ég auðvitað að fara með strákana í sund fyrst ég var búin að lofa því þarna áður svo við fórum í nýju kópavogslaugina... hún er svo mikið æði! Við fengum okkur svo pulsur og brunuðum heim og sofnuðu báðir strákarnir... alveg uppgefnir! Ég bar þá svo í rúmið og leyfði þeim að hvíla sig og reyndi það sjálf en fékk ýmsar skemmtilegar fréttir svo ég átti erfitt með að slaka á Glottandi Bara gaman...

Þegar þeir voru svo búnir að leggja sig þá fórum við í heimsókn til afa gamla og hittum þar Söndru, Kjartan og pabba. Og svo eftir heimsóknina brunuðum við í smáralindina að hjálpa Matta smá... Djöfull tók sú ferð á! Það voru bara of margir í smáralindinni og strákarnir á útopnu! Ég held ég hafi aldrei týnt þeim áður og í þetta skiptið týndi ég þeim mörgum sinnum, þeir hlupu allan tímann í sitthvora áttina alltaf!?! Óákveðinn Og svo þegar kom að því að fara loksins útí bíl og heim aftur þá fengu þeir báðir frekjuköst og ég þurfti að bera þá báða út... geðveikt stuð! Öskrandi Ég náði svo að koma þeim heim, gefa þeim mat og koma þeim í bólið um hálf 9 leitið. Svo bara settist ég í sófann og hálf drapst þar... þar til ég mundi eftir fjandans sameigninni um 10 leitið! Svo þá varð ég að fara í það að þrífa hana... ÉG HATA ÞESSA SAMEIGN! Hehehehe... ég varð nett pirruð í gær yfir þessu... hehehe! En það tókst allt á endanum og ég fór mjöööög þreitt að sofa í gær, það þreitt að ég svaf þvílíkt illa í alla nótt?! Svo gærdagurinn byrjaði frábærlega en endaði frekar pirraður... hehe... mig langar allavega ekki í annan svona dag!

Svo er ég bara að græja mig og strákana til fyrir ættarmót... Elvar er reyndar farinn af stað með mömmu og Gulla pabba og förum við Anton á eftir, þegar hann er búinn  að leggja sig. Vonum bara að sólin hlýði mér og haldi sig á himninum því ég vil sól og sumar... enga rigningu takk! Hafið það gott um helgina Svalur
25. júlí 2008 klukkan 13:34
Karen
2 athugasemdir
22júlí

Sumarfrí :)

Jeppsí... ég er í sumarfríi, búin að vera í fríi í tvær vikur og byrja ekki að vinna aftur fyrr en 5 ágúst, nice!! Búið að vera fínt veður þar til núna sem er hundleiðinlegt, höfum ekkert að gera og nennum engu í svona rigningarviðbjóði!!

Við erum ekki búin að gera neitt sérstakt í sumarfríinu okkar nema slaka á, fara uppí bústað til múttu og hafa það extra kósý og leika þess háttar. Búið að vera fínt frí bara... langar samt mega að skreppa eitthvað til útlanda en það verður að bíða til næsta árs... vonandi nær maður að leggja smá pening til hliðar svo það verði hægt!

Ég er á milljón þessa dagana að leita mér að nýjum sófa og gengur það barasta ekkert!! Finn fullt af ógeeeeðslega flottum sófum en ómæ þeir eru svooooo dýrir!!?? Maður getur auðveldlega farið á hausinn við að kaupa sér geggjuð húsgögn, það er alveg á hreinu... svo ég er bara dugleg að skoða og bíð spennt eftir að finna draumasófann minn sem ég hef efni á... það hlítur að takast á endanum!?

Segjum þetta gott... þið sem eruð í fríi megið endilega vera í bandi, við höfum svo lítið að gera þessa dagna!
22. júlí 2008 klukkan 12:59
Karen
2 athugasemdir
04júlí

Kominn tími?

Jæja... nærri mánuður síðan seinustu skrif... voðalega er maður orðinn latur við þetta! En já... kannski ekki skrítið þegar lítið gerist hjá manni. Nenni nú ekki að hafa þetta langt í kvöld, ég ætti í rauninni að vera farin að sofa en ég er að rembast við að gera það ekki eins og vanalega, hehehe!

Dóri fór aftur út að vinna fyrir um 3 vikum síðan og kemur ekki aftur fyrr en 12 ágúst svo það er lítið um "frí" hjá mér... ég er sem sagt voðalega uppáþrengjandi við allt og alla þessa dagana að grátbiðja fólk um að passa guttana svo ég geti unnið í ríkinu aðra hvora helgi, það hefur gengið upp og niður og hefur mamma verið algjör bjargvættur þegar hún hefur haft tök á því að hjálpa mér, takk takk takk Koss En ég vona nú að þetta fari að ganga betur á næstunni... svona fyrst maður er að komast í sumarfrí!! ÓJÁ!! Það er bara vinna á morgun í leikskólanum og svo er ég komin í sumarfrí þar í heilar 4 vikur takk... algjör lúxus! En ég ætla samt að reyna að vinna þegar ég get í ríkinu og svona svo maður er nú ekki í algjöru fríi.... vildi óska þess samt að ég gæti bara stungið af í þessar 4 vikur til útlanda, djöfull hefðum við gott af því!

Æji... ég nenni ekki að rembast við að skrifa eitthvað meira... þeir sem eru forvitnir verða bara að hringja í mig eða koma í heimsókn, hahahaha! Glottandi
04. júlí 2008 klukkan 00:27
Karen
3 athugasemdir
09júní

Barnlaus vika að klárast

Strákarnir fóru til Dóra á mánudaginn og eru búnir að vera þar síðan... ég sæki þá svo í leikskólann loksins á morgun, guð minn góður hvað mér hlakkar til að knúsa þá!! Dóri fer held ég svo á þriðjudaginn út að vinna í tvo mánuði svo það var gott að hann gat tekið strákana í svona góðann tíma... þeir sakna hans þá vonandi minna í þessa tvo mánuði... mér kvíður doltið fyrir því Fýldur

En kannski segja smá frá vikunni... ég ákvað að reyna að gera sem mest til að nýta "fríið mitt" hahaha! Ég ætlaði í bíó með Söndru og Steinnunni vinkonu hennar en það var uppselt þegar við mættum... ætluðum að sjá sex and the city. Svo við fórum bara útá videóleigu og leigðum okkur dvd og komum hingað heim með nammi og læti... svo þetta reddaðist nú hjá okkur Glottandi 

Svo á þriðjudaginn gerðum við aðra bíó-tilraun en í þetta skiptið keyptum við miða á miði.is svo við komumst pottþétt á myndina, hehehe! Myndin var auðvitað algjört æði... bara algjör stelpumynd Koss 

Á miðvikudaginn fór ég og hitti Heru og Helgu Lind... við brunuðum niðrí bæ og ætluðum á kaffihús. Löbbuðum fyrst inná vegamót... troðið... svo inná sólon... troðið... og svo og svo... við fórum allavega inná einhverja staði og enduðum á óliver þar sem við fengum loksins sæti. Við ákváðum líka að vera flottar á því og pöntuðum okkur hvítvínsflösku... þegar hún var búin fengum við okkur bjór og þegar við vorum að verða búnar með hann þá kom þjóninn bara með kokteila fyrir okkur í boði húsins?? humm humm... við vitum ekki alveg afhverju en drukkum þá auðvitað með bestu lyst Ullandi Svo þegar ég loksins skrölti heim um miðnætti þá var maður bara nokkuð vel í því... hahaha... á miðvikudegi!! Algjört snilldarkvöld!!

Fimmtudagurinn var úber rólegur bara... fór snemma að sofa og alles bara enda ogguponsu þunn... híhí!

Ég vann svo í ríkinu á föstudaginn og tók því rólega heima þegar ég loksins komst heim enda var ég svo að vinna allan laugardaginn. Ég endaði svo í grilli á laugardagskvöldið með Svenna sem vinnur í ríkinu með mér, heima hjá einhverjum vini hans og vorum við nokkur þar að sötra langt fram eftir kvöldi. Við kíktum svo aðeins í bæinn og svona... fínt kvöld bara Brosandi

Sunnudagur=þynnka... hahaha!! Svaf til hálf 4 í dag... meiri þynnkan sem er búin að hrjá mann í dag... enda ágætisdrykkja á manni í gær!! En ég reif mig á fætur um hálf 8 og henntist í sturtu og gerði mig sæta... brunaði svo uppí kefl til Jóhönnu minnar og við kíktum á kaffihús og tróðum í okkur köku... namm namm!! Takk fyrir rólegt og gott kvöld dúllan mín Koss

En ég get svo ekki beðið eftir því að knúsa strákana á morgun!! Rosalega er ég búin að sakna þeirra... vinnudagurinn á morgun verður allavega lengi að líða! Ég ætla samt að koma mér í bólið... alveg kominn tími á mann Ullandi
09. júní 2008 klukkan 00:57
Karen
1 athugasemd
31maí

Veikindi yfirstaðin

Ég er bara búin að vera ein hrúga þessa vikuna, búin að rokka upp og niður í hita, með maaaaaaaaassívan hausverk og eyrnaverk. En ég fór í vinnuna í dag þar sem ég var orðin alveg hitalaus en virðist ekki ætla að ná að losna við þennan hausverk Óákveðinn Það hlítur nú að gerast á endanum...

En ég er voða kát að það er barasta komin helgi strax aftur... ég er náttlega búin að sofa þessa viku af mér svo þetta var frekar fljótt að líða, hehe! Það verður frekar busy samt hjá okkur strákunum um helgina. Ætla að fara með þá í klippingu á morgun og sund, svo er mér boðið í stúdentaveislu sem er án barna svo ef ég fæ pössun þá kíki ég við þar og svo er mér líka boðið í 20 ára afmæli hjá henni Guðrúnu Sif annað kvöld sem mig langar voða mikið að kíkja í. Ég er að vinna í því að plata Kjartan litla bróa til að passa fyrir mig *krossleggjumfingur* en ef hann vill passa þá ætla ég bara að vera prúð og stillt og kíkja þangað edrú Brosandi Barasta nenni ekki að vera þunn á sunnudaginn að reyna að hugsa um gæjana, ekki séns sko!

En svona á meðan ég man þá vil ég óska henni Guðrúnu Sif til hamingju með tuttugu árin sín en hún átti afmæli á fimmtudaginn þessi dúlla Koss

Svo á sunnudaginn er verið að fara að skíra hana Nadíu Líf... hún er nú meiri dúllumúsin!! Ég sá hana um daginn og hún er svo ótrúlega dugleg... svo var ég að skoða barnamyndir heima hjá Fanney af okkur systunum og ég er sko ekki frá því að ég eigi bara pínulítið í henni Nadíu Líf Glottandi Það sést svo líka alltaf betur og betur á barnamyndum af mér hvað hann Anton er skuggalega líkur mér! hehehe...

Ég er bara búin að vera hérna í rólegheitum í kvöld að mála, náði að klára 3 myndir takk fyrir kærlega Svalur Veit reyndar ekkert hvað ég á að gera við þær en það er allt annað vandamál, hahaha! Það er bara svo gaman að mála. Mig langar reyndar alveg ótrúlega mikið að prufa að mála eina huge stóra mynd!! Ég hef bara málað litlar því það er auðvelt að geyma þær eða gefa þær... svo ef einhvern langar í stóra mynd á vegginn sinn og veit kannski pínulítið hvernig mynd hann vill þá endilega segja mér... ég væri mikið til í að prufa að mála stóra mynd fyrir einhvern Saklaus 

En það hefur lítið gerst í þessari viku nema verkjatöflur og draumar svo ég segi þetta bara gott í bili.

31. maí 2008 klukkan 00:13
Karen
2 athugasemdir
23maí

Ein ég sit og blogga :P

Það er enn eitt svefnleysistímabilið í gangi hjá mér... ég bara á svo bágt með að sofna á kvöldinn að ég er farin að gefast upp á því að fara í bólið! Ef einhver kann töfralausn við svefnleysi þá vil ég endilega fá að heyra af henni takk Glottandi Því ég er að verða nett kúkú af þessu...

En svo ég klári nú svíþjóðarferðasöguna mína: Á laugardeginum fórum við með lest yfir til Malmö og skuttluðum Alexander til pabba síns og var hann svo þar yfir nóttina. Við Rannveig vorum því í Malmö allan daginn að rölta um og versla... ja eða svona eins og við gátum, hún Rannveig var svo bólgin undan tattoo-inu að hún átti bágt með að labba svona mikið greyið litla. En hún píndi sig nú samt svolítið fyrir mig þessi elska! Koss Við höfðum svo hugsað okkur að vera svo í Malmö og fara út að borða og á eitthvað tjútt þar (því það var búið að loka eina skemmtistaðinum sem Rannveig vissi um í Lund). En Rannveig var svo uppgefin í fætinum eftir daginn að hún treysti sér ekki í mega djamm svo við fórum bara heim í Lund, dressuðum okkur upp og gerðum okkur mega sætar Glottandi Fórum svo út að borða á stað sem Rannveig vissi að væri útiveitingarstaður og svo bar inni svo við gætum nú fengið okkur allavega 1-2 kokteila. Við sátum svo úti allt kvöldið sem var svoooo notó og borðuðum skuggalega góðan hamborgara... hef sko aldrei smakkað svona góðan hammara!!! Fengum okkur hvítvín með og svo kokteila eftir á og funduð bara svona flott á okkur og Rannveig barasta komst í svaka dansfíling svo við fórum að forvitnast um eitthvað djamm og kom í ljós að það var "skemmtistaður" niðrí kjallaranum á þessum stað, sem sagt undir barnum og skelltum við okkur þangað og dönsuðum af okkur rassinn!!!! Djöfull var þetta ógeðslega skemmtilegt og vel heppnað kvöld... eitthvað sem átti að vera svo rólegt og afslappað Ullandi Það héldu allir að ég væri sænsk og ætluðu aldrei að trúa því að ég skildi ekki neitt í sænsku... haha... og Rannveig náði að hözzla sér einn hermann takk fyrir pent! Snilldar kvöld í alla staði!! En sunnudagurinn var bara voða rólegur svo... ekki annað hægt í þynnku! Við sváfum út, sóttum Alexander og fórum heim að pakka niður... ég fór svo heim seinnipartinn og lenti hérna heima um 11-12 leitið en kom ekki heim fyrr en um 1 leitið og ætlaði sko aldrei að ná að sofna Fýldur Svefnleysið mitt byrjaði þá sem sagt... En þetta var æðisleg ferð og mig langaði ekkert heim! Varð algjörlega ástfangin af þessum stað sem er eitthvað sem ég bjóst ekki við... ég er svo mikil íslandsmanneskja en þarna gæti ég alveg hugsað mér að vera bara! Sérstaklega með hana Rannsý mína bara í næstu íbúð eða eitthvað... uss...

En svo er bara allt búið að vera hálfkreisí eftir að ég kom heim. Strákarnir komu til mín á miðvikudeginum og voru svo glaðir og kátir... alveg æðislegt að fá þá... ég saknaði þeirra svoooo!

Dóri var svo með strákana fyrir mig á laugardaginn og um nóttina því það var óvissuferð í vinnunni hjá mér, leikskólanum. Ætla ekki að fara útí einhver díteils af henni þar sem ég get ekki sagt að ég hafi verið neitt voðalega ánægð með hana... fannst hún ekki nógu skemmtileg en í henni fólst til dæmis Hvanneyri, hvalveiðistöð, mjólkurbú, ullarverksmiðja og fleirra í þeim dúr... hljómar spennó ekki satt? Óákveðinn Eini góði punkturinn við hana var maturinn sem var sjúklega góður og auðvitað félagsskapurinn en við náðum sko að skemmta okkur þrátt fyrir allt saman!! Það var svo partý heima hjá einni eftir ferðina og var tekið á því í singstar þar... ekkert smá skemmtilegt þar! Við kíktum svo í bæinn en ég stoppaði stutt enda orðin stjörf af drykkju og þreitu... hahaha! Tók alltof margar myndir en ég setti brot af því á myspeisið mitt... myndaalbúmið mitt er enn bilað svo ég notast bara við speisið þessa dagana fyrir myndirnar mínar.

Ég er svo búin að vera að mála í allt kvöld... ætlaði upphaflega bara að mála eina mynd, kannski tvær ef ég væri í stuði en endaði á því að gera 4 myndir! Hahaha... ég hefði örugglega haldið áfram ef ég hefði átt fleiri striga Svalur Ótrúlega skemmtilegt... en ég er ekki búin með neina af þessum myndum þar sem þær þurfa að þorna áður en ég get haldið áfram svo það eru engar myndir af þeim strax... en ég er með mynd af nýja tattoo-inu svona í lokin, ætla að hætta þessu blaðri og reyna að fara að sofa (já eða stara uppí loftið)


tattooið
23. maí 2008 klukkan 00:12
Karen
1 athugasemd
09maí

Í svíþjóð

Jæja lömbin mín litlu... þá er frúin barasta komin til svíþjóðar og mér líður alveg hreint yndislega!! Búið að vera svo rólegt og notalegt hérna með Rannveigu minni og Alexander litla, þau eru nú meira æðið Brosandi Ferðin hingað út gekk bara rosa vel... tíminn var fljótur að líða og ekkert vesen og Rannveig tók svo á móti mér á vellinum svo ég þurfti nú ekki að klóra mig áfram í dönskunni til að komast til hennar Ullandi Enda held ég að ég gæti það ekkert þar sem ég kann ekki stakt orð í dönsku... né sænsku svo ég þarf að láta Rannveigu túlka allt fyrir mig hérna úti... ég næ samt stundum smá hvað fólkið er að segja í kringum mig en það er nú samt mjöööög sjaldan, hehehe!!

Veðrið er búið að vera dásamlegt... mig langar helst ekkert aftur til Íslands!! Hitinn fór örugglega hátt upp í 30 stiga hita í dag sem var bara yndislegt... allavega hefur maður örugglega fengið smá lit í dag Svalur Ég fékk að sofa út í gær því Rannveig fór á fund til hádegis og nýtti ég það auðvitað í svefn, haha! Svo fórum við smá í bæinn, sóttum svo Alexander og fórum í búðina og komum svo heim og grilluðum kjúlla og maís... djöfull var það ógeðslega gott hjá okkur... við lágum líka á meltunni næstu 3 tímana og fengum okkur svo bjór, spiluðum og hljógum langt fram eftir nóttu. Dagurinn í dag byrjaði snemma, Alexander fór í leikskólann um 9 og við í mallið að versla... náði að versla eitthvað af því sem ég ætlaði mér, þarf að klára það á morgun og svo sóttum við Alexander snemma í leikskólann og fórum heim. Settumst út á svalir í sólbað með bjór, nammmm..... og svo kom vinur hennar Rannveigar og sótti okkur um 5 leitið og við brunuðum yfir í Malmö og fengum okkur tattoo Hlæjandi Fengum okkur báðar á ristina, ég fékk mér 3 stjörnur og Rannveig nokkur blóm og krúsídúllur... ég skelli inn mynd við tækifæri. Svo næst á dagskrá er að skella góðri mynd í tækið og liggja með tærnar uppí loftið! Á morgun förum við með Alexander yfir til Malmö því hann ætlar að gista hjá pabba sínum næstu nótt svo við kjellurnar ætlum að eyða deginum í Malmö og skella okkur svo út á skrallið þar... það verður stuð sko!!

En segjum þetta gott í bili... ég skrifa meira þegar ég kem aftur heim en ég á að lenda heima um 11 leitið á sunnudagskvöldið... verst að mig langar helst ekkert heim, hehe! Túttelífrút Ullandi
09. maí 2008 klukkan 18:58
Karen
Engin athugasemd
06maí

Allt að gerast!

Jæja... það er bara allt að bresta á hjá manni því ég er að fara til hennar Rannsýar í fyrramáli HlæjandiHlæjandi Ég bara trúi þessu varla sko!! Fattaði ekkert almennilega að ég væri í alvörunni að fara fyrr en á sunnudagskvöldið. Strákarnir fóru til Dóra seinnipartinn í gær og veit ég eiginlega ekkert hvenær ég fæ þá aftur... hehe... svo ég var ein í gær eftir 5 en var voða busy samt eins og vanalega! Fór að vinna í ríkinu og fleira svo ég náði lítið að gera af því sem gera þarf fyrir ferðina... svo dagurinn í dag er búinn að vera algjört bull, ég er búin að vera á milljón! Og á enn eftir að þvo þvott og pakka niður Ullandi Haha... kannski sniðugt að hætta að hangsa hérna og halda áfram? Take care... svo kemur minns aftur á sunnudagskvöldið Glottandi Chao!
06. maí 2008 klukkan 18:39
Karen
1 athugasemd
04maí

Sunnudagur

Ég vaknaði klukkan 6 í morgun eins og aðra morgna... þetta er að verða svo þreitt að Anton kunni ekki að sofa lengur en til 6, það er alveg sama hversu þreittur hann er á kvöldin og hvenær kvölds hann fer að sofa... alltaf vaknar hann um 6 leitið!?!? En ég kúrði nú uppí rúmi til nærri 8 svo þetta er nú kannski ekki alslæmt en samt... maður er enn voða þreittur!

Mig langar að óska henni Rannveigu til hamingju með 25 ára afmælið sitt í gær Koss En það styttist og styttist í ferðina mína til hennar, það eru bara 3 dagar þar til ég hitti hana!!?? En ég fer af stað eldsnemma á miðvikudagsmorguninn og kem aftur til baka rétt um miðnætti á sunnudaginn... vá hvað mér hlakkar til! Ef Glenn (barnsfaðir hennar Rannveigar) getur verið með strákinn þeirra um helgina þá erum við á leiðinni eitthvað út á lífið að halda uppá afmælið hennar... Æji hvað það verður gott að komast í burtu í smá tíma, í nýtt umhverfi og slaka aðeins á!!

Ég fór með strákana í húsdýra-og fjölskyldugarðinn á fimmtudaginn, 1 maí. Við fórum með Jóhönnu, Bödda og Emilíu Rós... það var svo frábært veður að maður var bara úti á peysunni... alveg æðislegt! Svo maður komst í svakalegt sumarskap!! Þetta var líka voða gaman, Elvar var frekar hræddur við flest dýrin nema selina og hestana... og þá allra helst hræddur við kindurnar því þær jörnuðu svo svakalega hátt, haha! Meiri dúllan Ullandi En Antoni fannst þetta bara æði, hann vildi helst fara inní griðinguna til hestanna til dæmis. Svo fórum við í einhver tæki í fjölskyldugarðinum... einhvern bát og líka í gröfurnar... Elvar fílaði sig algjörlega þar! En það lokaði um 5 sem okkur fannst frekar leim svo við vorum komin snemma heim aftur... hefðum alveg viljað vera lengur þarna! En takk Jóhanna og co. fyrir góðann dag, alltaf gaman að hitta ykkur! Svalur

Ég fór í klippingu og litun í gær og lét bústa allverulega upp rauða blæinn í hárinu mínu... svo ég er núna svona dökkrauðbrúnhærð... finnst þetta alveg geggjað flott! Hlæjandi Svo fórum við líka í gær með Söndru í húsgagnahöllina... ekki frá því að maður hafði fengið mikinn fiðring þar inni, mig langar svo í ný húsgögn... ja eða réttara sagt langar í mín eigin húsgögn Ullandi En ég verð að vinna í lottó fyrst! Svo fórum við í grill til pabba seinnipartinn... vá hvað það er langt síðan ég fékk grillmat! Þetta var alveg svakalega gott Brosandi

Ég er svo að hugsa um að fara með gæjana mína í sund bráðlega... held þeir hafi bara gott af því! Svo veit ég ekki hvað við gerum seinnipartinn, en við gerum alveg örugglega eitthvað... ég nenni ekki að hanga hérna heima allavega, það er alveg á hreinu!!
04. maí 2008 klukkan 08:39
Karen
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Elvar

Anton

Ég

Innskráningar kubbur

Leit